Starfsþróun háskólanna
Viðbótarnám, stök námskeið og viðburðir
Háskólar landsins taka með ýmsum hætti þátt í starfsþróun fagstétta sem þeir mennta í skóla- og frístundasamfélaginu. Starfandi kennarar og annað fagfólk sækir sér viðbótarmenntun, ýmist með stökum námskeiðum eða stuttu og löngu meistaranámi, sérstök námskeið eru þróuð í samstarfi við sveitarfélög og háskólakennarar koma að námskeiðahaldi og stuðningi við ýmis starfsþróunarverkefni. Ráðstefnur og viðburðir á vegum háskólanna eru vel sóttir af fyrrum nemendum háskólanna á sviði menntavísinda.
Úrval námskeiða
- Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri býður upp á fjölbreytt námskeið fyrir kennara, ýmist einingabær eða ekki.
- Opni Listaháskólinn býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða á sviði listkennslu og kennslu með aðferðum lista og sköpunar.
- Menntavísindasvið Háskóla Íslands er með fjölbreytt úrval námskeiða. Á vef starfsþróunar má finna úrval opinna námskeið sem standa kennurum og öðru starfsfólki í menntakerfinu til boða.
Menntafléttan
Menntafléttan – námssamfélög í skóla- og frístundastarfi er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Kennarasambands Íslands um hagnýt námskeið af fjölbreyttum toga, kennd með hugmyndafræði leiðtoganáms. Þróuð verða námskeið í stærðfræði, náttúrufræði, íslensku og læsi, auk þverfaglegra námskeiða sem snúa að námi og kennslu, vellíðan og heilsu, frístundastarfi og forystu í menntakerfinu.
