Ráðstefnur og málþing
- árvissir viðburðir
Menntakvika
Menntakvika er stærsta ráðstefna á sviði menntavísinda á Íslandi. Ráðstefnan er haldin í október árlega.
Hugarflug
Árleg rannsóknaráðstefna Listaháskóla Íslands. Hugarflug er vettvangur fyrir faglega og gagnrýna umræðu um listir, hönnun og arkitektúr.
Haust- og vorráðstefna
Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri stendur fyrir ráðstefnum sem eru ætlaðar kennurum og fagfólki í skólastarfi.
UTís
UTÍS-hópurinn stendur fyrir vinnustofum á Sauðárkróki á oddatöluárum og UTÍS á netinu á sléttum ártölum. UTÍS-hópurinn og Ingvi Hrannar Ómarsson kennari fengu hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna árið 2020.
Skólamálaþing KÍ
Kennarasamband Íslands stendur árlega fyrir glæsilegri dagskrá á alþjóðlegum degi kennara. Dagur kennara er haldinn hátíðlegur í október ár hvert.
Menntastefnumót
Stefnumótið er uppskeruhátíð þess þróunar- og nýsköpunarstarfs sem hefur sprottið upp í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar. Á mótinu verður ennfremur boðið upp á erlenda og innlenda fyrirlestra um menntamál, tónlist og aðra listviðburði.
Skólamálaþing sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir skólamálaþingi annað hvert ár og reglulegum morgunverðarfundum þess á milli.
Íslenskar æskulýðsrannsóknir
Árlega stendur Rannsóknarstofa í tómstundafræðum fyrir ráðstefnu, ásamt fjölmörgum bandamönnum sínum um metnaðarfullt æskulýðsstarf.
Morgunrabb RannUng
Markmið RannUng er að efla rannsóknir á menntun og uppeldi ungra barna. Rannsóknarstofan stendur reglulega fyrir morgunverðarfundum fyrir starfsfólk leikskóla og á yngsta stigi grunnskóla.