Samstarfsverkefni
- traust samstarf skilar árangri
Komdu að kenna
Komdu að kenna átakið hófst árið 2016 að frumkvæði kennaranema sem vildu vekja athygli á kennarastarfinu og hvetja ungt fólk til að fara í kennaranám. Í dag er Komdu að kenna sameiginleg regnhlíf allra háskólanna sem mennta kennara og kennaranemum fjölgar ár hvert
Íslensku menntaverðlaunin
Íslensku menntaverðlaunin eru veitt árlega. Verðlaununum er ætlað að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.
Bakhjarl
Í samkomubanninu vorið 2020 opnaði vefsvæði Bakhjarla skóla- og frístundastarfs í samstarfi Heimilis og skóla, HÍ og HA. Ævintýralegt safn hagnýtra tengla um nám, kennslu, leik og uppeldi, fyrirlestraröðin Heimilin og háskólinn og greinasafn og upptökur frá fjarmenntabúðum skólafólks. Sjón er sögu ríkari!
Verkfærakista Reykjavíkurborgar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar í skóla- og frístundastarfi safnar verkfærum í verkfærakistu fyrir alla að njóta. Tólin geta verið verkefni, kveikjur, myndbönd og vefsvæði sem nýtast kennurum og starfsfólki í skóla- og frístundastarfi.
Samstarf um drauma
Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar eiga í formlegu samstarfi um stuðning við innleiðingu menntastefnunnar Látum draumana rætast. Samstarfið birtist í rannsóknum, ráðgjöf, námskeiðum, viðburðum, hugmyndavinnu, nýsköpun og þróun.
PISA-könnunin
Menntamálastofnun sér um framkvæmd PISA-rannsóknarinnar sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk þriðja hvert ár Samstarf hefur verið milli Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Menntamálastofnunar um greiningu gagna og túlkun niðurstaða.
Skóli og tækni
GERT stendur fyrir grunnmenntun efld í raunvísindum og tækni. GERT tengir grunnskólanemendur og kennara við atvinnulífið með það að höfuðmarkmiði að efla áhuga nemenda á raunvísindum og tækni. Áfram GERT!